Snjallar öryggislausnir - Vöktun sem þú stjórnar fyrir það sem þú vilt, þegar þú vilt
Fáðu ráðgjöf og öryggislausnir sniðnar að þínum þörfum
Öruggar og notendavænar aðgangsstýringarlausnir. Upplifðu aukið öryggi með snjöllum aðgangsstýringarkerfum.
Örugg og umhverfisvæn lausn fyrir heimili, fjölbýli og fyrirtæki – snjallsíminn er lykillinn.
Stafrænt lyklakerfi án rafhlöðu. Hagkvæm og umhverfisvæn lausn fyrir heimili, fjölbýli, iðnað, orkufyrirtæki, fjarskiptageira og heilbrigðisstofnanir.
Gerðu heimili þitt og fyrirtæki bæði snjallvætt og öruggt með þráðlausum öryggisbúnaði.
Heildstæð innbrota- og þjófavarnarlausn fyrir heimili og fyrirtæki. Útbúðu sérsniðnar stillingar og stjórnaðu öllu á einum stað: hreyfinemum, sírenum, hitastýringu, snjalllýsingu og fleiru. Engin gagnageymsla á netinu og enginn viðbótarkostnaður.
Örugg eldvörn sem tryggir skjót viðbrögð og ver fasteignir og rekstur gegn eldsvoða. Brunakerfi sem eru einföld í uppsetningu, notendavæn og falla vel að nútímalegri hönnun fyrirtækja og stofnana.
Með reglulegu eftirliti tryggir Bakvakt að brunaviðvörunarkerfi starfi rétt og uppfylli strangar öryggiskröfur
Einföld uppsetning og áreiðanleg vörn fyrir rafmagnstöflur, rafeindabúnað, vélar, gagnaskápa og bifreiðar.
Hágæða öryggismyndavélakerfi sem tryggja skýra rauntímavöktun fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.
Tengdu reksturinn við fullkomið og sjálfvirkt viðbragðskerfi sem vaktar allan sólarhringinn.
Öflugar greiningarlausnir sem bregðast við áður en tjón verður og lágmarka viðbragðstíma. Þú móttekur boð á nánast hvaða formi sem er og setur þínar eigin reglur um hvað gerist í framhaldinu, hvort sem það er sjálfvirkt viðbragð í verkflæði sem þú skapar eða bein boð um að kalla út mannskap allt eftir því hvað hentar þinni starfsemi og hvernig þú metur alvarleika málsins.
Stöðugur rekstur við allar aðstæður með háþróuðum varaaflgjöfum sem vernda mikilvægan búnað. Tryggðu órofið rafmagn og verndaðu verðmæt tæki gegn straumleysi og spennusveiflum. Öflugar lausnir hannaðar fyrir íslenskar aðstæður.
Fjölbreytt úrval öryggislausna – allt frá eldvarnarkerfum til snjallmyndavéla, innbrotakerfi, aðgangsstýrikerfi, snjalllausnir og margt fleira fyrir heimili og fyrirtæki.
Rótgróin þekking á heimamarkaði og alþjóðlegum öryggiskröfum. Við leggjum áherslu á áreiðanleika og fagmennsku í hverju verkefni.
Með yfir 30 ára sameiginlega reynslu býr teymi okkar yfir óviðjafnanlegri sérþekkingu í heildstæðum öryggislausnum.
Vörur okkar og þjónustur eru hannaðar samkvæmt ströngustu gæðastöðlum, sem tryggja öryggi og hugarró hvers viðskiptavinar.
Við þjónustum öll brunaviðvörunarkerfi óháð framleiðanda með faglegum úttektum, viðhaldi og áreiðanlegri ráðgjöf.
Við bjóðum upp á hágæða lausnir frá Bewave, Reolink, iLOQ, BlazeCut, Eltek, Delta, Nox og fleiri leiðandi merkjum á alþjóðlegum öryggismarkaði.
Þarftu öryggislausn fyrir fyrirtækið eða heimilið? Fáðu persónulega ráðgjöf sem hentar þínum þörfum