Brunaviðvörunarkerfi

Fyrsta brunaviðvörunarkerfið sem sameinar öryggi og stílhreina hönnun
Brunaviðvörun með hágæða hönnun

Öryggislausnir frá Ítalíu með yfir 48 ára reynslu í þróun og framleiðslu.

Ítölsk framleiðsla – valin af fremstu fyrirtækjum heims

Þegar öryggi, áreiðanleiki og vönduð hönnun skipta máli, velja stærstu alþjóðlegu vörumerkin Teledata brunaviðvörunarkerfi. Kerfin okkar má finna í byggingum hjá fyrirtækjum á borð við Gucci, Rolex, Google og Fiat, þar sem strangar kröfur eru gerðar til eldvarna, tæknilegs frágangs og stílhreinnar útfærslu. TeledataOne sameinar hátæknilausnir í brunaviðvörun og notendavænt snertiviðmót, hannað til að falla inn í hvaða umhverfi sem er án þess að skerða virkni eða öryggi. Kerfið hentar jafnt í verslanir, skrifstofur, hótel og iðnaðarrými – og tryggir áreiðanlega eldvöktun, skjót viðbrögð og fagurfræðilega heildarlausn.

Ítölsk framleiðsla
brunaviðvörunarkerfa 3

Ný kynslóð brunaviðvörunarkerfa

Teledata brunaviðvörunarkerfin skila hámarks afköstum og áreiðanleika, með hátæknistýringu sem setur ný viðmið í eldvarnartækni. Kerfin tryggja nákvæma eldvöktun, hraðari viðbrögð og stöðugan rekstur, jafnvel við krefjandi aðstæður. TOUCH snertiviðmótið er hannað með notandann í huga – einfalt, skýrt og áhrifaríkt. Það auðveldar valmyndaflakk, forritun og daglega notkun, sem leiðir til betri upplifunar fyrir bæði uppsetningaraðila og endanotendur. Þetta gerir Teledata að leiðandi lausn í snjöllum, notendavænum og áreiðanlegum brunaviðvörunarkerfum fyrir byggingar þar sem öryggi og tæknilegir yfirburðir fara saman.

Sérsníðanlegur innfelldur rammi

Sérsníðanlegur

innfelldur rammi
secondary-shields

TeledataOne kerfið býður upp á innfelldar lausnir sem auka fagurfræðilegt gildi rýmisins og gera útlitið enn meira aðlaðandi. Öll kerfi okkar eru sérhönnuð til að falla að umhverfi bygginga. Tæknin hentar fullkomlega fyrir arkitekta og glæsibyggingar sem gera kröfur um gæði, útlit og öryggi.

Háþróuð brunakerfi - hagkvæmar lausnir

Fyrsta brunakerfið með útlit í fyrirrúmi

Markmið Teledata er að hanna, þróa og markaðssetja stílhreinar og nýstárlegar vörur.

fire pannel

Stafræn vöktun

Teledata brunaviðvörunarkerfi styðja öfluga skýjatengda fjarvöktun sem gerir notendum kleift að fylgjast með kerfinu í rauntíma í gegnum tölvu eða snjallsíma – hvar sem er og hvenær sem er. Þessi lausn hentar sérstaklega vel á dreifbýlum svæðum, iðnaðarsvæðum og öðrum stöðum þar sem ekki er stöðug viðvera, en þar sem áreiðanleg eldvöktun og skjót viðbrögð geta skipt sköpum. Rauntímaupplýsingar og sjálfvirkar tilkynningar veita betri yfirsýn, aukið öryggi og hugarró – jafnvel þegar enginn er á staðnum.

Hafðu samband

Af hverju Teledata brunaviðvörunarkerfi?

Fullkomið snertiviðmót

TeledataOne er fyrsta brunaviðvörunarkerfið á markaðnum sem notar eingöngu snertiskjá – hannað fyrir nútíma öryggislausnir með áherslu á einfaldleika, nákvæmni og notendavænni stjórn. Kerfið er vottað samkvæmt EN 54-2 og EN 54-4 stöðlum, sem tryggir hámarks áreiðanleika og öryggi í eldvöktun.

Einfalt í notkun

Allar skipanir, upplýsingar og svæði eru sett fram með skýrum skjámyndum og táknmyndum sem auðvelda notendavirkni, jafnvel við krefjandi aðstæður.

Stækkanlegt kerfi

TeledataOne býður upp á óviðjafnanlegan sveigjanleika sem byrjar með einni slaufu fyrir 240 skynjara og getur stækkað í allt að 9 slaufur með 2160 tækjum. Fullkomið fyrir allar stærðir bygginga.

Hagkvæm uppsetning

Stjórnstöðvar Teledata brunaviðvörunarkerfa eru hannaðar með innbyggðum einöngrurum sem verja kerfið gegn skammhlaupum og rásabilunum. Þessi háþróaða vörn tryggir að aðrir skynjarar og hlutar kerfisins haldist virkir, jafnvel þótt einstök eining bili. Þetta eykur öryggi, minnkar truflanir og dregur verulega úr viðhaldskostnaði, sem gerir kerfið bæði áreiðanlegt og hagkvæmt til lengri tíma litið – sérlega hentugt fyrir kröfuharðari eldvarnakerfi í atvinnu- og fjölbýlishúsnæði.

Fjölhæft kerfi

TeledataOne styður marga samskiptaprotokolla, þar á meðal Teledata, Apollo XP95, Discovery og Argus. Þetta veitir mikla samhæfni og sveigjanleika við val og uppsetningu á brunaviðvörunarbúnaði. Með stuðningi við búnað frá ólíkum framleiðendum er auðvelt að samþætta kerfið við bæði ný og eldri kerfi, sem eykur rekstraröryggi og dregur úr uppsetningar- og viðhaldskostnaði.

Miklir möguleikar

TeledataOne brunaviðvörunarkerfið styður fjölbreytt úrval skynjara, þar á meðal reyk- og hitaskynjara, aspirerandi reykskynjara (reyksog), línuskynjara, logaskynjara, gasskynjara, hitastrengi, þráðlausa skynjara og handboða. Þessi fjölbreytileiki gerir kerfið einstaklega hentugt fyrir bæði hefðbundnar byggingar og flókin tæknirými, þar sem hámarks öryggi og aðlögunarhæfni í eldvarnakerfum skiptir öllu máli.

Fáðu ráðgjöf Panta þjónustu

Hafðu samband við okkur

Panta þjónustu