Öryggis- og snjallheimiliskerfi

Hannaðu þína eigin öryggislausn og stýrðu öllu á einum stað: hreyfiskynjarar, sírenur, hitastýring, snjallljós og fleira.

Nýsköpun í vottuðum þráðlausum öryggislausnum sem henta alls staðar.

Kerfi sem hentar jafnt fyrir heimili, sumarbústaði, iðnaðarbil og fyrirtæki. Sameinar á áreynslulausan hátt öryggi og snjalla virkni, verndar eignina með vottuðum lausnum, greinir leka, eldhættu, eykur þægindi og styður við umhverfisvænan lífsstíl.

Verndaðu fjölskylduna og tryggðu öryggi heimilisins

BE WAVE býður upp á fjölbreytt úrval af vottuðum öryggislausnum sem gerir þér kleift að sérsníða vörnina að þínum þörfum. Þitt öryggi, þín ákvörðun!

öryggi heimilisins Bakvakt
Fullkomið öryggi

Fullkomið öryggi án tengingar við miðlæga netþjóna

Bewave er notendavænt og sjálfstætt öryggiskerfi sem sameinar brunaviðvörun, innbrotavörn og aðrar skynjaralausnir í einni heildstæðri lausn, án þess að vera háð skýjatengingu – sem tryggir aukið öryggi, áreiðanleika, einfaldari rekstur og fulla stjórn án þriðja aðila.

Heimavörn sem þú getur treyst.

Engin mánaðargjöld eða aukagreiðslur.
Heimavörn sem þú getur treyst_jpg

Bak við stílhreina og fágaða hönnun Bewave kerfisins leynist háþróuð tækni sem sameinar snjallstýringu, sjálfvirkni og öfluga öryggiseiginleika í einni nettri lausn. Fylgstu með heimilinu í rauntíma og stjórnaðu kerfinu hvaðan sem er með einföldu smáforriti.

Aðlagast heimilinu á einfaldan hátt

Fjölhæfar lausnir

Hannaðu þínar eigin öryggisstillingar sem henta þínum þörfum. Allt frá snjallstýringu heimilisins að öryggisbúnaði og háþróuðu eftirlitskerfi.

Fjölhæfar lausnir

Auðveld stjórnun hvaðan sem er

Hafðu fulla stjórn óháð staðsetningu. BEWAVE smáforritið verður þín fjarstýring fyrir allt heimilið.

Eitt kerfi fyrir allt

Einfalt og skilvirkt kerfi sem auðvelt er að setja upp og virkja. Umbreyttu heimilinu í öruggt og snjallvætt rými.

Eitt kerfi fyrir allt

Snjallstjórnstöðin tengist bæði með Ethernet og þráðlausu WiFi, sem veitir þér fulla yfirsýn og stjórn á öryggiskerfi heimilisins beint í gegnum snjallsímann – hvar og hvenær sem er. Þú færð rauntímaupplýsingar og getur stýrt öllum aðgerðum með einföldum hætti. Gagnaöryggið er alfarið í þínum höndum – engin gögn eru vistuð í skýi.

Öryggislausnir

sg-cat-ico-burglary 1

Innbrotaviðvörun

Öryggiskerfi nemur óboðna gesti samstundis og sendir upplýsingarnar til Snjallhubs, sem virkjar viðvörunarkerfi og tryggir öryggi heimilisins.

sg-cat-ico-heat 1

Hitastýring

Fullkomin stjórn á hitakerfi heimilisins hvar og hvenær sem er. Með appinu getur þú auðveldlega bætt við og stillt hvern hitanema fyrir hámarks þægindi.

sg-cat-ico-light 1

Lýsing

Ljósin kveikja sjálfkrafa þegar hreyfing greinist og skapa þér öryggi í myrkri og þægindi þegar þú ert með hendurnar fullar.

sg-cat-ico-random 1

Sérsniðnar aðgerðir

Bættu við tækjum að eigin vali fyrir snjallöryggisstýringuna þína og búðu til sérsniðnar aðgerðir. Stýrðu lýsingu, hitakerfi eða vaktaðu stöðu rýma hvort sem það er hitastig, reykur, rakastig, hreyfing eða hristingur.

Viðveruherming

Kerfið virkjar valin heimilistæki á handahófskenndum tímum til að líkja eftir eðlilegri viðveru. Þetta getur falið í sér:​ Kveikja og slökkva ljós. Opna og loka gluggatjöldum eða gardínum. Kveikja á sjónvarpi eða tónlist. Virkja vökvunarkerfi í garði.​

Samþætting

Hámarks nýting á núverandi búnaði Engin þörf á að skipta út gömlum rofum eða skynjurum – þau fá nýtt líf í snjallkerfi. Sveigjanleiki og fjölbreytt notkun Hentar í heimili, fyrirtæki og sérlausnir (t.d. öryggisventlar, dyrakerfi, LED stýringar). Einföld tenging og víðtæk samhæfni Vinnur með bæði spennu- og þurrtengimerkjum (dry contact) – auðvelt að samþætta með lágmarks breytingum.

Loftgæðavöktun

Nákvæm loftgæðamæling Mælir lykilþætti sem hafa áhrif á heilsu og þægindi: CO₂ (koldíoxíð) VOC (rokgjörn lífræn efni) Svifryk (PM1, PM2.5, PM10) Hitastig og rakastig Skynjarinn virkjar sjálfvirkar aðgerðir þegar loftgæði versna, s.s.: Kveikir á loftræstingu Opnar glugga (ef tengt mótor) Sendir viðvaranir í snjallsíma notanda

Snjallstjórnun

BE WAVE gerir notendum kleift að búa til sjálfvirkar aðgerðir sem auka þægindi og öryggi:​ Rútínur: Sjálfvirkar aðgerðir sem virkjast við ákveðnar aðstæður, svo sem tiltekinn tíma, hitastig eða hreyfingu. ​ Sviðsetningar (Scenes): Hópar af aðgerðum sem notandi getur virkjað með einum smelli, til dæmis "kvöldstemning" sem kveikir ljós og dregur fyrir gardínur.​ Tímasetningar: Hægt er að stilla tæki til að virkjast eða slökkva á ákveðnum tímum dagsins.

Snjallgardínur

Þægindi og sjálfvirk dagrútína – gardínur opnast/lokast eftir tíma eða aðstæðum. Orkusparnaður – minnkar hitatap og sólargeislun. Öryggisauki – hermir eftir viðveru þegar enginn er heima. Full samþætting við snjallkerfið – samhæft við ljós, hita og aðrar senuaðgerðir.

Skoða vefverslun
Hámarksöryggi, áreiðanleiki og notendavænt viðmót í fyrirrúmi

Lykilkostir Bewave öryggiskerfisins

Heimilisöryggi án nettengingar – Áreiðanlegt öryggiskerfi fyrir heimilið þitt

Áreiðanleg heimavörn – jafnvel án internets

Öryggiskerfið tryggir stöðugt eftirlit með heimilinu, óháð því hvort internettenging er til staðar eða ekki. Það heldur áfram að virka ótruflað, jafnvel þegar nettenging rofnar eða dettur út – tilvalið fyrir íslenskar aðstæður þar sem sambandsleysi getur komið upp.

Sjálfstætt og öruggt kerfi – engin skýjalausn, engin gagnalekaáhætta

Kerfið er fullkomlega sjálfstætt og byggir á staðarneti. Öll gögn og stjórnun fara fram innan veggja heimilisins – án tengingar við ytri skýjaþjónustu. Þannig eru viðkvæmar upplýsingar öruggar og þú hefur fulla stjórn yfir kerfinu sjálfur.

Hraðvirkt og nákvæmt staðarnet

Öryggiskerfið notar öflugt og hraðvirkt innanhússnet sem tengir alla skynjara með lágmarks biðtíma. Þetta tryggir hámarksnákvæmni í eftirliti með hreyfingum, opnun glugga og hurða, eða öðrum hugsanlegum öryggisbrotum.

Innbyggður Wi-Fi tengipunktur – einföld og hagkvæm uppsetning

Stjórnstöðin þjónar einnig sem þráðlaus tengipunktur (Wi-Fi hotspot), sem gerir ytri netbeina óþarfa. Þetta einfaldar uppsetningu, minnkar kostnað og tryggir að öll öryggistæki heimilisins tengist á sama samhæfða og örugga netinu. Þú færð eitt öruggt, lokað kerfi – án falins kostnaðar og án óþarfa flækjustigs.

Fáðu tilboð í öryggislausn
Lykilkostir Bewave öryggiskerfisins
Fáðu ráðgjöf Panta þjónustu

Hafðu samband við okkur

Panta þjónustu