Öryggi fyrir fyrirtæki, stofnanir og iðnað
Öryggislausnir fyrir heimili, geymslur og sumarbústaði
Flest fyrirtæki nota aðskilin kerfi fyrir viðvörunarbúnað, lýsingu og upphitun, þar sem hvert kerfi á sér sinn birgi og sitt notendaviðmót. BeWave Hybrid sameinar þetta allt á einu stjórnborði sem stýrt er úr einu smáforriti, hvort sem um er að ræða eina byggingu eða fleiri.
Reduce energy use outside working hours, keep conditions stable for staff and customers, and remove routine tasks from your team’s list.
Stjórnstöðin er í traustum búnaðarkassa og hönnuð fyrir faglega uppsetningu í atvinnuhúsnæði, tæknirýmum og stærri fasteignum. Nýta má áfram samhæfa vírtengda skynjara og stækka kerfið í takt við breytingar á húsnæðinu.
Í atvikaskránni sérðu hvað gerðist og hvenær. Með fjaraðgangi getur þú brugðist við hvar sem þú ert - bæði innan og utan vinnutíma.
Vírtengdir og þráðlausir hreyfiskynjarar, opnunarskynjarar fyrir hurðir og glugga og glerbrotsskynjarar vakta húsnæðið og verðmætin. Ábyrgðaraðilar fá tafarlaust tilkynningu ef viðvörun fer af stað.
Vatnsskynjarar í tæknirýmum, eldhúsum og geymslum greina leka snemma. Þannig gefst svigrúm til að bregðast við áður en vatnið veldur tjóni á búnaði, vörum eða aðliggjandi rýmum.
Reyk- og hitaskynjarar vara snemma við hættu í húsnæðinu. Það gefur starfsfólki færi á að bregðast við áður en atvik raskar daglegum rekstri
Innbrota-, bruna- og lekavarnir – allt í einu kerfi
Minni áhætta, lægri rekstrarkostnaður og einfaldari stjórnun – allt í einu kerfi.
Færri þjónustuaðilar, eitt viðmót og þjónusta á einum stað. Nýttu áfram núverandi lagnir og bættu við þráðlausum búnaði þegar þörf krefur. Þannig verða breytingar og viðbætur bæði fljótlegar og hagkvæmar. Fjaruppfærslur og vöktun auðvelda viðhald og halda kerfinu uppfærðu án þess að raska daglegum rekstri.
Skiptu húsnæðinu í öryggissvæði og láttu lýsingu og hita fylgja vinnutímanum með sjálfvirkum tímastillingum
Vaktaðu innganga og vörubirgðir eftir lokun og fáðu tilkynningar ef hreyfing greinist eða hurðir opnast utan opnunartíma.
Sameinaðu vírtengda skynjara í stórum rýmum og þráðlausan búnað þar sem erfitt er að koma lögnum fyrir.
Einbeittu þér að gestunum með betri yfirsýn yfir öryggi og þægindi. BeWave varar við innbrotum, eldi og vatnsleka og gerir þér kleift að stjórna hita og lýsingu úr einu appi – líka þegar þú ert fjarri.
Vakaðu og stjórnaðu húsnæði á mörgum stöðum úr einu appi, með skýrri yfirsýn yfir hverja stafsstöð
Fagleg uppsetning, áreiðanlegar vírtengingar og samræmd stjórnun öryggis, hita og lýsingar fyrir stærri heimili.
Við hönnum kerfið út frá húsnæðinu og þörfum þíns rekstrar. Fyrir hvert svæði veljum við þá samsetningu vírtengds og þráðlauss búnaðar sem hentar best.
Tæknimenn okkar sjá um uppsetningu, stillingar og gangsetningu og kenna starfsfólkinu að nota kerfið. Við fylgjum lausninni eftir með þjónustu og aðstoð, svo þú hafir traustan bakhjarl frá fyrsta degi.
Hafðu samband til að fá ráðgjöf.
Vantar þig heildarlausn sem hentar þínu fyrirtæki eða heimili? Við ráðleggjum og finnum lausn sem uppfyllir þínar þarfir.