VARAAFLGJAFAR

Hámarks áreiðanleiki sem tryggir stöðuga orku fyrir mikilvæga innviði eins og sjávarútveg, iðnað, fjarskipti og samgöngur. Eltek og Delta varaaflslausnir - þegar öryggi skiptir öllu máli. Fagleg þjónusta og ráðgjöf við val á öruggu varaafli fyrir íslenskar aðstæður.

Fyrir atvinnugreinar þar sem rekstrarstöðvun er ekki valkostur

Með háþróaðri orkunýtni og sveigjanlegum uppbyggingarmöguleikum eru Eltek varaaflslausnir hannaðar til að mæta ströngum kröfum í mikilvægu rekstrarumhverfi.

high power

Sérhæfðar varaaflslausnir fyrir íslenskt atvinnulíf

Hvort sem þú þarft að tryggja öruggan rekstur á jarðgöngum, stöðugleika í rafkerfum, eða samfellda virkni fyrir fjarskipta- og gagnamiðstöðvar, bjóðum við upp á Eltek og Delta varaaflslausnir sem uppfylla ströngustu öryggiskröfur og vottanir. Okkar sérfræðiþekking á Eltek og Delta kerfum tryggir að þitt fyrirtæki heldur áfram órofnum rekstri, allan sólarhringinn, alla daga.

Snjallt eftirlit og orkuhagkvæmni

UPS kerfin okkar samþætta fjarvöktun og orkusparandi tækni til að hámarka afköst og lækka rekstrarkostnað.. Fáðu heildaryfirsýn og stjórn yfir orkuinnviðum þínum með lausnum sem tryggja fyrirbyggjandi viðhald, bilanaskimun og hnökralausa kerfisstjórnun, jafnvel við erfiðustu aðstæður.

Hafðu samband
Í samstarfi við þá fremstu

Hjá Bakvakt bjóðum við upp á fullkomnustu varaaflgjafa frá Delta og Eltek ásamt sérfræðiráðgjöf til að tryggja að orkuinnviðir þínir standist tímans tönn með hámarksafköstum og áreiðanleika.

  • Einstakur áreiðanleiki Delta og Eltek varaaflgjafa
  • Orkuhagkvæmar lausnir sem draga úr rekstrarkostnaði
  • Sveigjanlegt og stækkanlegt kerfi sem vex með þínum þörfum
  • Stöðugt fjareftirlit allan sólarhringinn
  • Alþjóðlegar vottanir og samræming við íslenskar öryggiskröfur
Fáðu ráðgjöf Panta þjónustu

Hafðu samband við okkur

Panta þjónustu