Nuki snjalllásar

Hurðin veit hvenær þú kemur. Lykillinn er síminn þinn.
NUKI logo
Snjallvæddu hurðina þína á nokkrum mínútum

Engin borun, engin skipti á sílinder og engin þörf á lásasmið. Stjórnaðu aðgangi úr símanum, deildu stafrænum lyklum og sjálfvirknivæddu hurðina - hvar sem þú ert í heiminum.

Smart Lock Ultra Nordics

Minnsti og glæsilegasti snjalllás sem Nuki hefur framleitt.

Hannaður sérstaklega fyrir norræna einpunktslása (single deadbolt) sem eru algengir á íslenskum hurðum. Ryðfrítt stál, kolalaus mótor og innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða með segulhleðslu. Hleðst á um tveimur klukkustundum, hvort sem lásinn er á hurð eða ekki. Bein nettenging - engin þörf á auka búnaði eins og hub eða bridge.

Smart Lock Pro Bakvakt

Smart Lock Pro (5. kynslóð)

Fullkomnasti snjalllás Nuki til að setja á hefðbundna evrópska sílendra.

Kolalaus mótor, innbyggt Wi-Fi og stuðningur við Matter over Thread. Endurhlaðanleg rafhlaða og fáanlegur í svörtu og hvítu útliti. Stillanlegur læsingarhraði — veldu á milli hraðrar og hljóðlátrar virkni. Engin þörf á bridge eða hub.

Nuki access Bakvakt product

Enginn lykill?

Ekkert mál.
Nuki appinu
Nuki virkar með Nuki appinu, Nuki Keypad, Nuki Fob og Apple Watch.

Aðgangur að heimilinu án hefðbundins lykils. Deildu aðgangi með tímamörkum, takmarkaðu aðgang við ákveðinn tíma og afturkallaðu aðgang samstundis þegar þörf krefur. Allar komur og brottfarir eru sjálfkrafa skráðar.

Hurðin þín - nú snjallari en áður

Deildu aðgangi samstundis

Sendu stafræna lykla til gesta, ræstingarfólks eða verktaka með tímamörkum sem renna út þegar þér hentar. Afturkallaðu aðgang hvenær sem er - beint úr símanum.

Deildu aðgangi samstundis

Virkar með öllum snjallheimilum

Samhæft við Apple Home, Google Home, Alexa og Samsung SmartThings í gegnum Matter. Engin þörf á bridge eða hub.

Virkar með öllum snjallheimilum

Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða

Hleðst á um tveimur klukkustundum, hvort sem lásinn er á hurð eða ekki. Allar komur og brottfarir eru sjálfkrafa skráðar í appinu.

Hafðu samband

Við bjóðum uppsetningu og þjónustu fyrir þessa vöru.

Hafðu samband til að fá ráðgjöf.

Fáðu ráðgjöf Stofna verkbeiðni

Hafðu samband við okkur

Stofna verkbeiðni