Öryggi fyrir fyrirtæki, stofnanir og iðnað
Öryggislausnir fyrir heimili, geymslur og sumarbústaði
Engin borun, engin skipti á sílinder og engin þörf á lásasmið. Stjórnaðu aðgangi úr símanum, deildu stafrænum lyklum og sjálfvirknivæddu hurðina - hvar sem þú ert í heiminum.
Hannaður sérstaklega fyrir norræna einpunktslása (single deadbolt) sem eru algengir á íslenskum hurðum. Ryðfrítt stál, kolalaus mótor og innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða með segulhleðslu. Hleðst á um tveimur klukkustundum, hvort sem lásinn er á hurð eða ekki. Bein nettenging - engin þörf á auka búnaði eins og hub eða bridge.
Kolalaus mótor, innbyggt Wi-Fi og stuðningur við Matter over Thread. Endurhlaðanleg rafhlaða og fáanlegur í svörtu og hvítu útliti. Stillanlegur læsingarhraði — veldu á milli hraðrar og hljóðlátrar virkni. Engin þörf á bridge eða hub.
Aðgangur að heimilinu án hefðbundins lykils. Deildu aðgangi með tímamörkum, takmarkaðu aðgang við ákveðinn tíma og afturkallaðu aðgang samstundis þegar þörf krefur. Allar komur og brottfarir eru sjálfkrafa skráðar.
Sendu stafræna lykla til gesta, ræstingarfólks eða verktaka með tímamörkum sem renna út þegar þér hentar. Afturkallaðu aðgang hvenær sem er - beint úr símanum.
Samhæft við Apple Home, Google Home, Alexa og Samsung SmartThings í gegnum Matter. Engin þörf á bridge eða hub.
Hleðst á um tveimur klukkustundum, hvort sem lásinn er á hurð eða ekki. Allar komur og brottfarir eru sjálfkrafa skráðar í appinu.
Nuki Opener gerir núverandi dyrasímakerfi snjallt. Hleyptu gestum inn um aðalinnganginn beint úr Nuki-appinu, hvar sem þú ert – án lykils og án þess að þurfa að vera heima.
Innbyggði hurðarskynjarinn sýnir í rauntíma hvort hurðin er opin, lokuð eða stendur í hálfa gátt. Athugaðu stöðuna hvar sem er í Nuki-appinu og fáðu tilkynningu ef hurðin er skilin eftir opin. Með aðgangsskránni veistu alltaf nákvæmlega hvað er að gerast við hurðina – hvort sem þú ert heima eða að heiman.
Virkjaðu Ring to Open og opnaðu aðalinnganginn með því að hringja dyrabjöllunni. Þú velur hvort eiginleikinn sé virkur í 5–60 mínútur eða aðeins fyrir eina opnun.
Nuki skynjar þegar þú nálgast heimilið og virkjar Ring to Open. Hringdu dyrabjöllunni við aðalinnganginn og hurðin opnast – síminn helst í vasanum.
Veittu fjölskyldu, vinum, ræstingafólki eða þjónustuaðilum og stjórnaðu öllum aðgangsheimildum í appinu.
Sjáðu nákvæmlega hverjir komu og fóru, beint úr Nuki appinu
Settu það upp í núverandi dyrasíma sjálfur með skref-fyrir-skref leiðbeiningum í appinu.
Opnarinn sér um innganginn að byggingunni, Nuki snjalllásinn þinn sér um íbúðarhurðina - eitt app fyrir bæði.
Festist beint á núverandi hurð á innan við fimm mínútum með einföldum verkfærum. Hefðbundinn lykill virkar áfram að utan og engin hætta er á að læsast úti – engar breytingar á hurðinni.
Hafðu samband til að fá ráðgjöf.
Vantar þig heildarlausn sem hentar þínu fyrirtæki eða heimili? Við ráðleggjum og finnum lausn sem uppfyllir þínar þarfir.