Öryggi fyrir fyrirtæki, stofnanir og iðnað
Öryggislausnir fyrir heimili, geymslur og sumarbústaði
Nx Witness er myndvöktunarhugbúnaður sem finnur sjálfkrafa IP-myndavélar á netinu þínu og sameinar þær í einu viðmóti. Fylgstu með í beinni, leitaðu í upptökum og stjórnaðu myndvöktun á öllum starfsstöðvum úr tölvu, vafra eða síma – án þess að vera bundinn einum myndavélaframleiðanda.
Kerfið styður við þúsundir gerða IP-myndavéla frá leiðandi frameleiðendum. Þú getur því nýtt áfram þær myndavélar sem þú átt fyrir, sameinað ólík vörumerki í einu kerfi og bætt við búnaði þegar þarfirnar breytast.
Hver notandi getur raðað myndavélum í sitt eigið skjáviðmót og haft þær í forgrunni sem skipta hann mestu máli.
Stýrðu því hverjir mega horfa í beinni, skoða upptökur eða vista myndskeið úr hverri myndavél. Fáðu tilkynningar þegar búnaður bilar eða myndavél er sambandslaus . Tengdu Nx Witness við aðgangsstýringu, viðvörunarkerfi eða önnur kerfi með opnum viðmótum.
Tengstu úr tölvu, vafra eða síma og fylgstu með öllum starfsstöðvum. Öruggur fjaraðgangur færir myndvöktunina til þi´n, hvar sem þú ert.
Nýttu greiningu á fólki, ökutækjum og óvenjulegum atvikum til að fá markvissar tilkynningar. Þannig getur þú brugðist við án þess að fylgjast stöðugt með skjánum.
Geymdu upptökur á staðnum, í skýinu eða á báðum stöðum. Afritun og varaþjónar draga úr hættu á að upptökur glatist ef búnaður bilar.
Allt sem þarf til að fylgjast með, finna atvik og gæta verðmæta.
Frá einni myndavél til hundruða starfsstöðva
Byrjaður á einni starfsstöð og bættu við myndavélum, þjónum og staðsetningum þegar þörfin eykst. Nx Witness sameinar myndvöktunina í einu kerfi með miðlægri stjórnun, aðgangsheimildum og vöktun á stöðu búnaðar - hvort sem þú rekur eina verslun eða ert með starfsemi um allt land.
Fylgstu með öllum verslunum á sama stað, finndu upptökur af atvikum fljótt og fáðu betri yfirsýn yfir heimsóknir viðskiptavina
Vaktaðu innganga, bílastæði og sameiginleg rými í einni eða fleiri byggingum.
Hafðu yfirsýn yfir framleiðslusvæði, vörumótttöku og geymslur - jafnt að degi sem nóttu.
Sameinaðu myndvöktun skólabygginga og lóða með skýrri yfirsýn og miðlægri stjórnun.
Styðjið við öryggi gesta og starfsfólks með yfirsýn yfir innganga, sameiginleg svæði og verðmæti.
fylgstu með húsnæði og búnaði þótt enginn sé á staðnum og skoðaðu stöðuna úr símanum þegar þér hentar.
Bakvakt selur, setur upp og stillir Nx Witness fyrir íslensk fyrirtæki.
Við tengjum samhæfar myndavélar sem þú átt fyrir, stillum upptökur og aðgangsheimildir og komum fjaraðgangi í gagnið. Ef þú þarfnast aðastoðar erum við innan handar.
Hafðu samband til að fá ráðgjöf.
Vantar þig heildarlausn sem hentar þínu fyrirtæki eða heimili? Við ráðleggjum og finnum lausn sem uppfyllir þínar þarfir.