Öryggi fyrir fyrirtæki, stofnanir og iðnað
Öryggislausnir fyrir heimili, geymslur og sumarbústaði
Frá sýndargólfmerkingum til nákvæmra stillilaserlausna fyrir sagir, skurðarvélar og framleiðslubúnað — Delta Lasers útilokar þörfina fyrir málningu, límbönd og stöðugt viðhald í krefjandi iðnaðarumhverfi.
Í iðnaðarumhverfi með mikla umferð þar sem hefðbundnar gólfmerkingar slitna hratt er FieldLAS varanleg lausn. Allt að 20.000 klst. endingartími, IP65/IP67 vörn og þegar í notkun hjá Sorpu við krefjandi aðstæður í GAJA og Móttöku og flokkunarstöðinni í Gufunesi.
Class 3R leysir með stillanlegri línulengd og breidd - hentugur fyrir vöruhús, hleðslusvæði, framleiðslurými og önnur svæði þar sem skýr og sýnileg afmörkun skiptir máli. Bæði FieldLAS og Field Master eru einföld í uppsetningu, auðveld í stillingum og nánast viðhaldslaus.
Delta Logis, ClubStar og Max vörulínurnar bjóða upp á laserlausnir fyrir framhliðar bygginga, merkingar, auglýsingar og viðburði utandyra. Ef þú vilt skapa sterka sjónræna upplifun á byggingu eða viðburði á Íslandi, sér Bakvakt um ráðgjöf og afhendingu á réttri lausn.
Fyrirferðarlítill staðsetningarlaser fyrir nákvæma stillingu á sögum og skurðarvélum í trésmíði og framleiðslu. Fastur fókus, allt að 200 mW afl og keyrir á 9–24V DC.
Staðsetningarlaser fyrir steinskurðarvélar, textílvélar og framleiðslubúnað. Varpar skýrri viðmiðunarlínu beint á vinnustykkið - fyrir nákvæma skurði í hvert skipti.
VXS Series Öflugir staðsetningarlaserar fyrir þungan iðnað. Hannað fyrir bílaiðnað, málmvinnslu og stóra framleiðslu þar sem nákvæm stilling yfir lengri vegalengdir er lykilatriði.
FieldLAS varpar sýndargólflínum sem slitna ekki eða fölna - útilokar kostnað og viðhald vegna hefðbundinna gólfmerkinga.
Hannað fyrir samfellda notkun í iðnaði með lágmarks viðhaldi. Varahlutir í boði eftir þörfum.
Ryk- og vatnsvarið - hentar bæði fyrir innanhúss og utanhúss notkun í krefjandi umhverfi.
Laserlínulengd og breidd stillanleg eftir þörfum fyrir nákvæma merkingu og aukið öryggi.
Þegar í notkun hjá Sorpu. Lausn sem hefur reynst vel við íslenskar aðstæður.
Hafðu samband til að fá ráðgjöf.
Þarftu öryggislausn fyrir fyrirtækið eða heimilið? Fáðu persónulega ráðgjöf sem hentar þínum þörfum