SnapKey - Stafræn aðgangsstýring fyrir iLOQ

SnapKey breytir iLOQ lásunum þínum í fullkomið stafrænt aðgangskerfi, stjórnað úr símanum þínum og vefnum.
Snapkey logo
iLOQ er grunnurinn sem SnapKey byggir ofan á.

Veittu, deildu og afturkallaðu aðgang samstundis, fylgstu með hverri hurð í rauntíma og uppfylltu öryggiskröfur mikilvægra innviða.

Síminn er lykillinn þinn

Með SnapKey-appinu ber notandinn símann einfaldlega að iLOQ-lásnum og hurðin opnast með NFC. Engar lyklakippur, enginn lyklaskápur og engir kóðar. Allir stafrænir lyklar eru á einum stað, virka án nettengingar og eru varðir með Face ID, Touch ID eða PIN-kóða.
Notendur sjá alla lykla sína í appinu, geta valið sjálfgefinn lykil fyrir skjótari aðgang og opnað beint frá heimaskjá símans.

Síminn er lykillinn þinn

iLOQ er grunnurinn. SnapKey bætir við möguleikum.

iLOQ lásar þurfa ekki rafhlöður, lykla, snúrur eða ytri aflgjafa. SnapKey bætir snjallri stjórnun ofan á kerfið. - Opnun með NFC - Berðu símann að lásnum og opnaðu. - Virkar án nettengingar - Lyklarnir eru dulkóðaðir og varðveittir með öruggum hætti í símanum. - Lífkennaauðkenning - Appið er farið með Face ID, Touch ID eða PIN-kóða. - Fáanlegt á íslensku - Appið styður einnig ensku og norðurlandamál

Deiling og stjórnun lykla

Deiling og stjórnun lykla

Veittu og afturkallaðu aðgang á svipstundu.
dark blue shadows

Veittu starfsfólki, verktökum eða gestum aðgang beint úr appinu eða vefviðmótinu. Stilltu upphafs- og lokatíma svo aðgangsheimildir falli sjálfkrafa úr gildi þegar þeirra er ekki lengur þörf.
 Starfsfólk getur deilt tímabundnum lyklum með undirverktökum sem renna sjálfkrafa út þegar verkinu lýkur. Þú sérð allt hver hefur aðgang, að hvaða dyrum og á hvaða tíma.

Hannað fyrir mikilvæga innviði

Rauntímavöktun og viðvaranir

Allir aðgangsatburðir og boð frá skynjurum eru skráð ti lað tryggja rekjanleika og styðja við kröfur NIS2- og CER-tilskipana ESB - í öruggri og skalanlegri lausn.

Rauntímavöktun og viðvaranir

Bókaðu rými og opnaðu þau í sama appinu

Með SnapKey geta notendur bókað fundarherbergi, sameiginleg rými og aðra aðstöðu beint í gegnum appið.
Skoðaðu lausa tíma, bókaðu rými og skráðu komu með nokkrum snertingum.

SnapKey entry

Engar rafhlöður og snúrur - nettenging lása óþörf

iLOQ vörur þurfa ekki tengingu við raf- og netkerfi - án þess að fórna öryggi eða sveigjanleika.

iLOQ entry app

Snjallvöktun og reglufylgni – Tenging lása við rafkerfi, rafhlöður eða net óþörf.

Hafðu samband

Fyrir hverja er SnapKey?

Einn vettvangur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem þurfa örugga og rekjanlega aðgangsstýringu að mörgum dyrum og starfsstöðvum.

Fyrir hverja er SnapKey

SnapKey er hannað fyrir rekstraraðila mikilvægra innviða, þar á meðal veitu-, fjarskipta- og orkufyrirtæki, auk fasteigna- og rekstur sem þar sem þarf að stýra aðgangi að mörgum byggingum úr einu kerfi.

Hvers vegna SnapKey?

Engir lyklar

Vesen vegna týndra lykla, lásaskipta og afhendingar lykla heyrir sögunni til. Stafrænu lyklarnir eru í símanum og þú stjórnar þeim hvar sem þú ert.

Aðgangur strax

Veittu, breyttu eða afturkallaðu aðgang á örskotsstundu úr appinu eða vefviðmótinu. Breytingarnar taka samstundis gildi í kerfinu.

Tímastýrður aðgangur

Veittu starfsfólki, verktökum og gestum aðgang með skilgreindum upphafs- og lokatíma svo aðgangsheimildir gildi aldrei lengur en þörf er á.

Fullur rekjanleiki

Allir aðgangsatburðir og boð frá skynjurum eru skráð og mynda heildstæða atvikaskrá fyrir öryggiseftirlit, úttektir og reglufylgni.

NIS2 og CER tilbúið

Hannað til að hjálpa rekstraraðilum mikilvægra innviða að uppfylla nýjustu öryggis- og reglufylgnitilskipanir ESB.

Virkar án nettengingar

Stafrænir lyklar eru geymdir á öruggan hátt í tækinu og opna hurðir jafnvel án nettengingar - byggðir á raflögn- og rafmagnslausri arkitektúr iLOQ, þannig að ekkert þarf að hlaða og ekkert getur bilað.

Rauntímaeftirlit

Tengdu IoT skynjara til að fylgjast með stöðu hurða, virkja viðvörunarkerfi og bregðast við atvikum um leið og þau gerast.

Bakvakt þjónustar og er umboðsaðili SnapKey og iLOQ á Íslandi.

Pantaðu á netinu - Við sjáum um framhaldið.

Af hverju Bakvakt?

Bakvakt útvegar, setur upp og stillir iLOQ lausnir um allt land.

Við aðstoðum við val á réttum lásum, uppsetningu aðgangshópa, samþættingu skynjara, vöktun og atvikaskráningu. Teymið okkar sér um innleiðinguna frá upphafi til enda svo þú fáir öruggt og sveigjanlegt aðgangskerfi sem þróast með þörfum rekstrarins – með þjónustu og ráðgjöf á Íslandi.

Bakvakt - SnapKey og iLOQ á Íslandi

Við bjóðum uppsetningu og þjónustu fyrir þessa vöru.

Hafðu samband til að fá ráðgjöf.

Fáðu ráðgjöf Stofna verkbeiðni

Hafðu samband við okkur

Stofna verkbeiðni