Meiri upplýsingar um vöruna

4K útimyndavél sem tengist þráðlaust um WiFi 6

Reolink W330 er sama myndavél og áður var seld undir heitinu RLC-810WA. Vörunúmerið og umbúðirnar breyttust, en vélbúnaðurinn er óbreyttur. Ef þú komst hingað af leit að RLC-810WA ertu á réttri síðu.

W330 skilar 8 MP mynd í 4K upplausn (3840 × 2160) og sendir hana um tvíbands WiFi á 2,4 GHz eða 5 GHz með stuðningi við WiFi 6. Hún er ætluð útivistarnotkun við inngang, port, bílastæði og útveggi þar sem ekki er hægt eða hagkvæmt að leggja netstreng.

Nætursjón í lit með kastljósi

Tvær innrauðar LED-perur (2 × 2 W, 850 nm) gefa svarthvíta nætursjón í allt að 30 m. Innbyggt kastljós (4,3 W, 6500 K) getur kveikt á sér þegar hreyfing greinist, verið tímastillt eða verið alveg slökkt. Þegar það er virkt tekur myndavélin upp í fullum lit, sem skiptir máli þegar þarf að greina fatnað, lit á bíl eða önnur einkenni sem hverfa í svarthvítri mynd.

Greining sem fækkar fölskum boðum

Myndavélin greinir á milli fólks, ökutækja og dýra og sendir tilkynningu í Reolink-appið aðeins þegar hún þekkir það sem þú hefur valið. Það fækkar boðum vegna trjágreina, skugga og veðurs. Greiningin fer fram í myndavélinni sjálfri og krefst ekki áskriftar.

Fæling og tvíátta tal

Þegar eitthvað grunsamlegt greinist getur W330 kveikt kastljósið og innbyggða sírenu samtímis. Hljóðnemi og hátalari gera þér kleift að tala við þann sem stendur fyrir framan myndavélina, hvar sem þú ert staddur.

Afl, tenging og geymsla

W330 er ekki PoE-myndavél. Hún þarf 12 V straumbreyti á staðnum (DC 12 V ⎓ 1 A, undir 12 W), svo gera þarf ráð fyrir rafmagni við uppsetningarstaðinn. Hún er einnig með RJ45-nettengi (10/100 Mb/s) ef þú vilt frekar fastlínu en þráðlausa tengingu. Upptökur má vista á microSD-kort í myndavélinni, á Reolink NVR eða á FTP-þjón, og hún styður samfellda upptöku allan sólarhringinn, hreyfiupptöku og tímastillta upptöku.

Veðurvörn og íslenskar aðstæður

Húsið er úr áli og myndavélin er IP67-flokkuð, það er rykþétt og varin gegn vatni. IP-flokkun segir hins vegar ekkert um tæringarþol. Við sjávarsíðu, þar sem saltur vindur og sjóúði ná búnaði, mælum við með vönduðum frágangi á festingum, köplum og tengjum og reglulegri skoðun. Uppgefið vinnsluhitasvið er −10 °C til +55 °C, sem er rétt að hafa í huga þar sem búnaður stendur óvarinn í frosti.

Helstu tæknilegar upplýsingar

  • Eldra vöruheiti: RLC-810WA
  • Myndflaga: 1/2,7″ CMOS
  • Upplausn: 3840 × 2160 (8 MP) við 20 ramma/sek.
  • Linsa: f = 4,0 mm föst, F1.6, með IR-cut síu
  • Sjónsvið: 88,8° lárétt / 45,2° lóðrétt
  • Innrauð nætursjón: allt að 30 m (2 stk. / 2 W / 850 nm)
  • Nætursjón í lit: kastljós 1 stk. / 4,3 W / 6500 K
  • Hljóð: tvíátta tal, innbyggður hljóðnemi og hátalari
  • Þráðlaust: WiFi 6, 2,4 GHz og 5 GHz tvíbands
  • Nettengi: 1 × RJ45, 10/100 Mb/s
  • Afl: DC 12 V ⎓ 1 A, undir 12 W
  • Geymsla: microSD-kort, Reolink NVR eða FTP-þjónn
  • Myndþjöppun: H.265
  • Veðurvörn: IP67, álhús
  • Vinnsluhiti: −10 °C til +55 °C
  • Ábyrgð: 2 ára ábyrgð framleiðanda

Reolink W330 (RLC-810WA) – 4K WiFi 6 útimyndavél með kastljósi og nætursjón í lit

19990 kr.
Reolink W330 er 4K útimyndavél sem tengist þráðlaust um tvíbands WiFi 6 og hentar þar sem netlögn er ekki í boði. Hún greinir fólk, ökutæki og dýr, tekur upp í fullum lit að nóttu með innbyggðu kastljósi og getur kveikt sírenu til fælingar. Tvíátta tal, IP67-veðurvörn og upptaka á microSD-kort, Reolink NVR eða FTP-þjón. Varan hét áður RLC-810WA.

1 á lager

Magn
Sending

Við bjóðum upp á heimsendingu innanlands með Dropp.is. Einnig er hægt að sækja vöruna til okkar. Dropp.is er þægileg þjónusta með afhendingarstaði og pakkaskápa víðsvegar um landið, sem gerir þér kleift að sækja pöntunina þegar þér hentar. Afhendingartími er yfirleitt 2-3 virkir dagar.

Skil og endurgreiðslur

Þú hefur 30 daga frá afhendingardegi til að skila vöru. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og óskemmd. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar um skil.

Ertu með spurningu?

Ef þú hefur einhverjar spurningar, þarft aðstoð eða vilt fá sérsniðið tilboð, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Kostir þess að versla hjá Bakvakt

Payment

Greiðslur

Örugg kortagreiðsla með Teya. Greiddu hratt, örugglega og á einfaldan hátt.
Fast Delivery

Hröð afhending

Afhending samdægurs eða næsta virka dag um land allt. Einnig er hægt að sækja pantanir á skrifstofu Bakvaktar að Sundaborg 9, 104 Reykjavík.
Installation

Uppsetning

Kauptu hjá okkur. Við sjáum um uppsetningu og þjónustu. Allar lausnir sem við seljum bjóðum við einnig upp á að setja upp, taka í notkun og þjónusta.
Tried and tested in Iceland

Prófað við íslenskar aðstæður

Við veljum vörur og lausnir sem standast íslenskar aðstæður — kulda, veðurálag, afskekktar staðsetningar og krefjandi rekstrarumhverfi.

Vöruráðgjöf

Óska eftir uppsetningu eða þjónustu Fáðu tæknilega aðstoð, uppsetningu og þjónustu frá sérfræðingum Bakvaktar. [email protected]
Ertu ekki viss um hvaða lausn hentar? Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum Bakvaktar. Við aðstoðum við val á lausnum, hönnun, uppsetningu og tæknileg málefni. - Hafðu samband. Hafðu samband

Virkar vel með

Reolink Home Hub – Wi-Fi 6 öryggismiðstöð fyrir heimilið

Reolink Home Hub – Wi-Fi 6 öryggismiðstöð fyrir heimili og fyrirtæki Reolink Home Hub er miðlæg stjórnst...

20990 kr.
Reolink Go G330 – 4MP 4G myndavél

Öflug og einföld 4G öryggismyndavél með 2K myndgæðum, snjallri greiningu og rafhlöðu – fullkomin fyrir s...

31490 kr.
Reolink Home Hub + 4× Argus Eco Ultra – 4K rafhlöðumyndavélakerfi

Þráðlaust 4K öryggiskerfi fyrir stærri svæði Reolink Home Hub + 4× Argus Eco Ultra er byggt á sömu tækn...

59490 kr.
Reolink RP-PN8 – 12 rása NVR upptökutæki með 8 PoE tengjum

Reolink RP-PN8 – 12 Rása NVR Upptökutæki með 8 PoE tengjum Reolink RP-PN8 er öflugur 12 rása NVR myndþjó...

57690 kr.
Reolink Solar Panel 2 – 6 W sólarsella með USB-C, svört

Sólarsella fyrir rafhlöðumyndavélar Reolink Reolink Solar Panel 2 er 6 W sólarsella sem heldur rafhlöðuknú...

9990 kr.
Reolink Solar Panel 3 SP3-W – 12 W hvít sólarsella fyrir rafhlöðumyndavélar

Reolink Solar Panel 3 SP3-W – 12 W hvít sólarsella Reolink Solar Panel 3 SP3-W er hvít 12 W sólarsella fyr...

13990 kr.
Reolink RP-PCB12M – 12MP PoE Bullet myndavél með litnætursýn & háþróaðri AI greiningu

Reolink RP-PCB12M – 12MP PoE Bullet Myndavél með Litnætursýn Reolink RP-PCB12M er öflug 12 megapixla PoE bu...

34690 kr.
Reolink NVS8-8MB4 – 8 rása PoE NVR (Bullet)

Reolink NVS8-8MB4 – fullkomið 4K PoE upptökukerfi með snjallri greiningu Reolink NVS8-8MB4 er heildstætt ör...

107990 kr.
Skoða fleiri Myndavélar

Vinsælar vörur

Nuki Smart Lock Pro (5. kynslóð)

Premium snjalllás með innbyggðu WiFi, Thread og endurhlaðanlegri rafhlöðu – örugg og einföld aðgangsstý...

Original price was: 54090 kr..Current price is: 45990 kr..
Nuki Smart Lock Ultra Nordics

Nuki Smart Lock Ultra Nordics – Premium snjalllás með WiFi Nuki Smart Lock Ultra Nordics er nýjasta kynslóð...

Original price was: 58790 kr..Current price is: 49989 kr..
Nuki Keypad 2 NFC

Snjallt lyklaborð með fingrafaralesara, PIN kóða og NFC aðgangi fyrir Nuki snjalllása – einföld og örugg ...

32990 kr.
Reolink Go PT Plus – 5MP 4G snjallmyndavél

Reolink Go PT Plus – 5MP 4G snjallmyndavél Reolink Go PT Plus er háþróuð 4G 5MP öryggismyndavél sem samei...

46990 kr.
Sandisk Extreme Pro 64GB microSD

Háhraða microSD kort fyrir 4K upptöku, snjallsíma og dróna – allt að 200MB/s leshraði og framúrskarandi a...

7490 kr.
Smart HUB Plus – Snjallkerfisstýring með 4G og WiFi

BE WAVE – Snjallöryggiskerfi og heimilisstýring í einu BE WAVE er nýstárlegt, þráðlaust snjallöryggiske...

49990 kr.
Verslaðu vörurnar okkar