BeWave Hybrid - Öryggi og snjallstýring fyrir fyrirtæki

Sameinaðu öryggi og stjórnun húsnæðis í einu kerfi. BeWave Hybrid tengir saman þráðlausan og vírtengdan, vaktar atvinnuhúsnæðið og varar við innbrotum, eldi og vatnsleka. Þú stjórnar jafnframt hita, lýsingu og gluggatjöldum - allt á einum stað.
BE WAVE logo
Hannað fyrir atvinnuhúsnæði

Flest fyrirtæki nota aðskilin kerfi fyrir viðvörunarbúnað, lýsingu og upphitun, þar sem hvert kerfi á sér sinn birgi og sitt notendaviðmót. BeWave Hybrid sameinar þetta allt á einu stjórnborði sem stýrt er úr einu smáforriti, hvort sem um er að ræða eina byggingu eða fleiri.

Sjálfvirkni sem einfaldar daglegan rekstur

Set schedules that follow your opening hours. Lights, heating and blinds adjust automatically when the premises open and close, and the alarm arms itself at the end of the day.

Reduce energy use outside working hours, keep conditions stable for staff and customers, and remove routine tasks from your team’s list.

Sjálfvirkni sem einfaldar daglegan rekstur
Vírtengt þar sem þarf. Þráðlaust þar sem hentar.

Vírtengt þar sem þarf. Þráðlaust þar sem hentar.

BeWave Hybrid stjórnstöðin styður bæði vírtengda skynjara og þráðlausan ABAX 2 búnað frá SATEL. Nýttu lagnir í nýbyggingum og tæknirýmum og bættu við þráðlausum skynjurum þar sem lagnavinna er kostnaðarsöm eða veldur raski.

Stjórnstöðin er í traustum búnaðarkassa og hönnuð fyrir faglega uppsetningu í atvinnuhúsnæði, tæknirýmum og stærri fasteignum. Nýta má áfram samhæfa vírtengda skynjara og stækka kerfið í takt við breytingar á húsnæðinu.

Miðstýring. Fullt yfirlit.

Stjórnaðu hverju svæði úr einu forriti.
bewave-background-shade
Settu einstök svæði á vörð eða taktu þau af verði, skoðaðu stöðu þeirra og fáðu tilkynningu um leið og eitthvað þarfnast athygli. Veittu stjórnendum, starfsfólki og þjónustuaðilum aðgang eftir þörfum hvers og eins.

Í atvikaskránni sérðu hvað gerðist og hvenær. Með fjaraðgangi getur þú brugðist við hvar sem þú ert - bæði innan og utan vinnutíma.

Alhliða vöktun allan sólarhringinn

Innbrotavarnir

Vírtengdir og þráðlausir hreyfiskynjarar, opnunarskynjarar fyrir hurðir og glugga og glerbrotsskynjarar vakta húsnæðið og verðmætin. Ábyrgðaraðilar fá tafarlaust tilkynningu ef viðvörun fer af stað.

Innbrotavarnir-b2b

Lekavarnir

Vatnsskynjarar í tæknirýmum, eldhúsum og geymslum greina leka snemma. Þannig gefst svigrúm til að bregðast við áður en vatnið veldur tjóni á búnaði, vörum eða aðliggjandi rýmum.

Lekavarnir-b2b

Brunavarnir

Reyk- og hitaskynjarar vara snemma við hættu í húsnæðinu. Það gefur starfsfólki færi á að bregðast við áður en atvik raskar daglegum rekstri

dark-gray-backg

Innbrota-, bruna- og lekavarnir – allt í einu kerfi

Hafðu samband

Hvers vegna kjósa fyrirtæki BeWave Hybrid

Minni áhætta, lægri rekstrarkostnaður og einfaldari stjórnun – allt í einu kerfi.

BeWave Hybrid

Ein lausn í stað margra kerfa

Færri þjónustuaðilar, eitt viðmót og þjónusta á einum stað. Nýttu áfram núverandi lagnir og bættu við þráðlausum búnaði þegar þörf krefur. Þannig verða breytingar og viðbætur bæði fljótlegar og hagkvæmar. Fjaruppfærslur og vöktun auðvelda viðhald og halda kerfinu uppfærðu án þess að raska daglegum rekstri.

BeWave í notkun

Skrifstofur

Skiptu húsnæðinu í öryggissvæði og láttu lýsingu og hita fylgja vinnutímanum með sjálfvirkum tímastillingum

Verslanir

Vaktaðu innganga og vörubirgðir eftir lokun og fáðu tilkynningar ef hreyfing greinist eða hurðir opnast utan opnunartíma.

Vöruhús og verkstæði

Sameinaðu vírtengda skynjara í stórum rýmum og þráðlausan búnað þar sem erfitt er að koma lögnum fyrir.

Hótel og gistiheimili

Einbeittu þér að gestunum með betri yfirsýn yfir öryggi og þægindi. BeWave varar við innbrotum, eldi og vatnsleka og gerir þér kleift að stjórna hita og lýsingu úr einu appi – líka þegar þú ert fjarri.

Starfsemi á mörgum stöðum

Vakaðu og stjórnaðu húsnæði á mörgum stöðum úr einu appi, með skýrri yfirsýn yfir hverja stafsstöð

Stærri heimili

Fagleg uppsetning, áreiðanlegar vírtengingar og samræmd stjórnun öryggis, hita og lýsingar fyrir stærri heimili.

BeWave á Íslandi - frá Bakvakt

Fagleg hönnun, uppsetning og þjónusta

Af hverju Bakvakt?

Við hönnum kerfið út frá húsnæðinu og þörfum þíns rekstrar. Fyrir hvert svæði veljum við þá samsetningu vírtengds og þráðlauss búnaðar sem hentar best.

Tæknimenn okkar sjá um uppsetningu, stillingar og gangsetningu og kenna starfsfólkinu að nota kerfið. Við fylgjum lausninni eftir með þjónustu og aðstoð, svo þú hafir traustan bakhjarl frá fyrsta degi.

Vefverslun
Lykilkostir Bewave öryggiskerfisins

Við bjóðum uppsetningu og þjónustu fyrir þessa vöru.

Hafðu samband til að fá ráðgjöf.

Fáðu ráðgjöf Stofna verkbeiðni

Hafðu samband við okkur

Stofna verkbeiðni