Nx Witness - öll myndvöktun á einum stað

Fylgstu með í beinni, skoðaðu upptökur og nálgastu myndavélar úr fjarlægð - allt í einu hraðvirku og þægilegu viðmóti. Nx Witness sameinar myndavélar frá flestum helstu framleiðendum í einu kerfi.
network-optix-logo
Stjörnstöð með yfirsýn yfir allar myndavélar í þinni umsjá

Nx Witness er myndvöktunarhugbúnaður sem finnur sjálfkrafa IP-myndavélar á netinu þínu og sameinar þær í einu viðmóti. Fylgstu með í beinni, leitaðu í upptökum og stjórnaðu myndvöktun á öllum starfsstöðvum úr tölvu, vafra eða síma – án þess að vera bundinn einum myndavélaframleiðanda.

Margir framleiðendur - Eitt myndvöktunarkerfi

Flest myndavélakerfi eru bundin við einn framleiðanda. Nx Witness gefur þér frelsi til að velja búnað sem hentar þínum þörfum.

Kerfið styður við þúsundir gerða IP-myndavéla frá leiðandi frameleiðendum. Þú getur því nýtt áfram þær myndavélar sem þú átt fyrir, sameinað ólík vörumerki í einu kerfi og bætt við búnaði þegar þarfirnar breytast.

Margir framleiðendur

Rauntímavöktun og upptökur - Finndu rétta augnablikið

Skiptu á milli myndar í beinni og upptaka á sömu tímalínu. Farðu beint á valinn tíma, skoðaðu atvik frá mörgum myndavélum hlið við hlið og vistaðu myndskeið til að deila þegar þörf krefur.

Hver notandi getur raðað myndavélum í sitt eigið skjáviðmót og haft þær í forgrunni sem skipta hann mestu máli.

Frelsi til að velja

Frelsi til að velja

Allar myndavélarnar í einu kerfi
green-blue-grad-bg
Sameinaðu myndavélar frá ólíkum framleiðendum og veldu búnað út frá þínum eigin forsendum. Hraðvirk myndbirting og leit auðvelda yfirsýn, jafnvel þegar margar myndavélar eru í gangi samtímis.

Stýrðu því hverjir mega horfa í beinni, skoða upptökur eða vista myndskeið úr hverri myndavél. Fáðu tilkynningar þegar búnaður bilar eða myndavél er sambandslaus . Tengdu Nx Witness við aðgangsstýringu, viðvörunarkerfi eða önnur kerfi með opnum viðmótum.

Hannað fyrir daglega notkun

Yfirsýn hvar sem þú ert

Tengstu úr tölvu, vafra eða síma og fylgstu með öllum starfsstöðvum. Öruggur fjaraðgangur færir myndvöktunina til þi´n, hvar sem þú ert.

Yfirsýn hvar sem þú ert

Snjöll myndgreining

Nýttu greiningu á fólki, ökutækjum og óvenjulegum atvikum til að fá markvissar tilkynningar. Þannig getur þú brugðist við án þess að fylgjast stöðugt með skjánum.

Traust gagnageymsla

Geymdu upptökur á staðnum, í skýinu eða á báðum stöðum. Afritun og varaþjónar draga úr hættu á að upptökur glatist ef búnaður bilar.

dark-gray-backg

Allt sem þarf til að fylgjast með, finna atvik og gæta verðmæta.

Hafðu samband

Kerfi sem vex með rekstrinum

Frá einni myndavél til hundruða starfsstöðva

intrusion-camera-detection-wide

Byrjaðu smátt og bættu við eftir þörfum

Byrjaður á einni starfsstöð og bættu við myndavélum, þjónum og staðsetningum þegar þörfin eykst. Nx Witness sameinar myndvöktunina í einu kerfi með miðlægri stjórnun, aðgangsheimildum og vöktun á stöðu búnaðar - hvort sem þú rekur eina verslun eða ert með starfsemi um allt land.

Hvar hentar Nx Witness?

Verslanir

Fylgstu með öllum verslunum á sama stað, finndu upptökur af atvikum fljótt og fáðu betri yfirsýn yfir heimsóknir viðskiptavina

Skrifstofur og fyrirtæki

Vaktaðu innganga, bílastæði og sameiginleg rými í einni eða fleiri byggingum.

Iðnaður og vöruhús

Hafðu yfirsýn yfir framleiðslusvæði, vörumótttöku og geymslur - jafnt að degi sem nóttu.

Skólar og menntastofnanir

Sameinaðu myndvöktun skólabygginga og lóða með skýrri yfirsýn og miðlægri stjórnun.

Hótel og gististaðir

Styðjið við öryggi gesta og starfsfólks með yfirsýn yfir innganga, sameiginleg svæði og verðmæti.

Ómönnuð svæði og sumarhús

fylgstu með húsnæði og búnaði þótt enginn sé á staðnum og skoðaðu stöðuna úr símanum þegar þér hentar.

Nx Witness á Íslandi - frá Bakvakt

Við sjáum um uppsetningu. Þú færð yfirsýn

Af hverju Bakvakt?

Bakvakt selur, setur upp og stillir Nx Witness fyrir íslensk fyrirtæki.

Við tengjum samhæfar myndavélar sem þú átt fyrir, stillum upptökur og aðgangsheimildir og komum fjaraðgangi í gagnið. Ef þú þarfnast aðastoðar erum við innan handar.

Bakvakt - SnapKey og iLOQ á Íslandi

Við bjóðum uppsetningu og þjónustu fyrir þessa vöru.

Hafðu samband til að fá ráðgjöf.

Fáðu ráðgjöf Stofna verkbeiðni

Hafðu samband við okkur

Stofna verkbeiðni