ÖRYGGISMYNDAVÉLAR

Hágæða Reolink öryggislausnir með skýrum upptökum, snjallri hreyfiskynjun og fjarstýrðu eftirliti fyrir heimili, sumarbústaði og fyrirtæki

Heildstætt öryggi án áskriftar

Reolink öryggismyndavélakerfið sameinar háþróaða 16MP myndtækni, snjalla gervigreind og fjölbreytta tengimöguleika – án mánaðarlegra gjalda. Kerfið greinir á skilvirkan hátt á milli fólks, dýra og hreyfingar, sem minnkar falskar viðvaranir og tryggir betra eftirlit. Hvort sem þú vilt tryggja öryggi heimilisins, sumarbústaðarins eða fyrirtækisins, býður Reolink upp á áreiðanlega, notendavæna og hagkvæma lausn í myndavélaeftirliti.

Hágæða mynd, nætursjón og öryggisvöktun

Fylgstu með hvaðan sem er í heiminum

Öryggið heim til þín

Reolink öryggislausnir á hagstæðu verði

Þráðlaust öryggiskerfi með rafhlöðumyndavélum

Greinir: Fólk | Ökutæki | Dýr

Vefverslun
Wireless security system
Reolink Argus 4 Pro

180° sjónsvið án blindpunkta, 4K myndgæði allan sólarhringinn

Vefverslun
argus4
4K 8MP Snjall PTZ Wi-Fi 6 Myndavél með sjálfvirkri eftirfylgni

Háhraða tengingar á 2,4 og 5 GHz | 3X optískur aðdráttur | Hreyfanleg í 355° lárétt og 50° lóðrétt

Vefverslun
4k-8MP
16MP UHD tvöföld linsa PoE Öryggismyndavél með 180° víðu sjónsviði

Byltingarkennd 16MP UHD | 180° panorama | Hreyfiskynjun

Vefverslun
16mp-UHD
Fáðu ráðgjöf

Kynntu þér myndavélaúrvalið okkar

Tryggt öryggi fyrir heimili og fyrirtæki

Wi-Fi Myndavélar

Íslenskar aðstæður krefjast áreiðanlegra lausna. Við bjóðum Wi-Fi myndavélar sem standast íslenskar veðuraðstæður með faglegri uppsetningu.

Skoða vörur

Rafhlöðumyndavélar

Sveigjanleg lausn fyrir fjölbreytt svæði. Hentar fullkomlega þar sem hefðbundið rafmagn er takmarkað eða óhentugt, með langri rafhlöðuendingu í íslenskri veðráttu.

4G Myndavélar

Örugg vöktun fyrir sumarbústaði og afskekkt svæði. Tengjast íslensku 4G neti og gefa þér aðgang að myndavélakerfinu hvar sem þú ert.

PoE IP Myndavélar og upptökutæki

Öflug heildarlausn fyrir fyrirtæki og stofnanir. Áreiðanleg tenging með netsnúru tryggir stöðugleika og hágæða upptökur við allar aðstæður.

Tveggja-Linsu öryggismyndavélar

Tvöföld vörn með breiðu sjónsviði. Hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður með nætursjón og veðurþoli.

4G Útimyndavélar

Harðgerðar útimyndavélar fyrir íslenskt veðurfar. Fullkomnar fyrir vöktun á lóðum, bílastæðum og útisvæðum. Einnig hægt að fá Ranger myndavélar fyrir veiðimenn sem þekkja í sundur mismunandi dýr.

ipro-axis

Öflug öryggismyndavélakerfi með gervigreindartækni

Skoða lausnirnar

IPRO og Axis öryggismyndavélakerfi veita hámarks öryggi, skýra yfirsýn og stöðuga vöktun allan sólarhringinn – hvar sem öryggiskröfur eru miklar. Með háskerpumyndum, snjallri hreyfigreiningu og áreiðanlegri upptöku eru þessi kerfi hönnuð til að greina hættu á meðan hún er að gerast og tryggja skjót viðbrögð. Vandað myndavélakerfi dregur úr áhættu, verndar eignir og veitir dýrmæt sönnunargögn ef upp koma atvik, sem gerir það að lykilþætti í nútíma öryggislausnum. Lausnirnar henta sérstaklega vel á iðnaðarsvæðum, hafnarsvæðum, lokuðum vinnusvæðum og öðrum svæðum sem krefjast stöðugrar vöktunar og aðgangsstýringar. IPRO og Axis sameina áreiðanleika, skalanleika og snjalla tækni fyrir faglegt öryggisumsjónarkerfi sem stendur undir öllum aðstæðum.

Háþróaðar öryggislausnir á samkeppnishæfu verði

Fullkomið öryggiseftirlit

Myndavélar sem sjá það sem þú sérð ekki – allan sólarhringinn, við allar aðstæður. IPRO og Axis öryggismyndavélar bjóða upp á háupplausn, nætursjón og áreiðanlega rauntímavöktun, sem tryggir skjót viðbrögð og öruggt eftirlit á erfiðum svæðum eins og iðnaðarsvæðum, hafnarsvæðum og lokuðum svæðum með háar öryggiskröfur.

Fullkomin öryggisvakt

Gervigreind & snjalllausnir

Háþróuð greiningartækni sem eykur öryggisvöktun, bætir nákvæmni upptaka, dregur úr fölskum viðvörunum og lækkar rekstrarkostnað.

Gervigreind & snjalllausnir

Framúrskarandi myndgæði

i-PRO og Axis öryggismyndavélar skila háupplausn, hraðri vinnslu og 99,99% áreiðanleika – jafnvel við íslenskar aðstæður. Vandaðar öryggislausnir sem tryggja stöðuga upptöku og hámarka öryggi á iðnaðarsvæðum, fyrirtækjasvæðum og öðrum svæðum með miklar kröfur.

Hafðu samband
Framúrskarandi eftirlits- og myndavélakerfi með gervigreindartækni

Borgarvöktun

Öryggismyndavélar sem vaka yfir almenningsrýmum – tryggja öryggi borgarbúa og skapa friðsælt umhverfi.

Heilbrigðisþjónusta

Snjallvöktun fyrir heilbrigðisstofnanir – samþætt kerfi sem veita fullkomna yfirsýn og tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks.

Íþróttavellir

Öflugt eftirlitskerfi fyrir íþróttaleikvanga – sérsniðið að þörfum fjölmennra viðburða með hárnákvæmri upptökutækni.

Löggæsla

Örugg gagnaveita fyrir löggæslu – auðveldar skjótan aðgang að mikilvægum sönnunargögnum þegar hver sekúnda skiptir máli.

Samgöngur

Hátæknilausnir fyrir samgöngur – vöktun sem tryggir öryggi á stöðvum, biðsvæðum og í farartækjum með kristaltærri upptökutækni.

Stjórnsýsla

Gervigreindarvöktun fyrir opinberar stofnanir – eykur öryggisvitund, styttir viðbragðstíma og tryggir óyggjandi sönnunargögn.

Menntastofnanir

Snjöll myndavélakerfi sem auka öryggi nemenda, eru kostnaðarhagkvæm og nýta til fullnustu núverandi tækniinnviði.

Skoðaðu lausnirnar
Fáðu ráðgjöf Panta þjónustu

Hafðu samband við okkur

Panta þjónustu