Rafhlöðulaust stafrænt lyklakerfi

iLOQ stafræna lykilkerfið umbreytir hefðbundnum læsingum í snjalllausnir. Örugg aðgangsstýring án lykla, án rafhlöðu, en með allri þeirri tækni sem þú þarft til að tryggja öryggi þitt og spara tíma og peninga.
Snjöll, örugg og lyklalaus aðgangsstýring

Háþróuð NFC-tækni sem virkjast án rafhlöðu og breytir hefðbundnum læsingum í stafrænar öryggislausnir. Hagkvæm, umhverfisvæn og stjórnuð í rauntíma.

Fasteignafélög og leiguhúsnæði

iLOQ býður öfluga aðgangsstýringu fyrir fasteignafélög með stafrænum lyklum eða snjallsímalausnum. Hagkvæmt kerfi sem einfaldar umsýslu og eykur öryggi í allri eignasafnastjórnun.

Losnaðu við flókna lyklaumsýslu og háan rekstrarkostnað. iLOQ NFC tæknin veitir rafhlöðulausa lausn sem lækkar viðhaldskostnað, tryggir yfirsýn og gerir þér kleift að stjórna aðgangi að fjölda eigna frá einni miðlægri skýjalausn.

Fasteignafélög og leiguhúsnæði
Stafræn lyklakerfi fyrir opinberar og atvinnubyggingar

Stafræn lyklakerfi fyrir opinberar- og atvinnubyggingar

iLOQ býður upp á stafrænt lyklakerfi sem hentar sérstaklega vel fyrir skóla, sjúkrahús, atvinnuhúsnæði, skrifstofur og opinberar byggingar.

Lausnin tryggir örugga, sveigjanlega og hagkvæma aðgangsstýringu. Hannað fyrir umhverfi þar sem er mikil umferð – iLOQ útrýmir hefðbundinni lyklastjórnun og eykur bæði öryggi og rekstrarskilvirkni.

Öruggt. Þægilegt. Sveigjanlegt

Rafhlöðulaust lyklakerfi
iloq key

Nýtir hreyfiorku sem myndast við ísetningu lykils eða NFC-tækni snjallsímans, sem eykur rekstraröryggi án viðbótarkostnaðar. Engar rafhlöður eða ytri orkugjafar nauðsynlegir, sem tryggir sjálfbæra lyklastjórnun og hagkvæman rekstur lyklakerfis fyrir íslensk fyrirtæki- og stofnanastarfsemi.

Stafræn lyklalausn framtíðarinnar

Ein lykillausn

Einn lykill – öll aðgangsréttindi á einum stað. Með iLOQ færðu snjalllæsingar sem veita þér fulla stjórn yfir aðgangi þínum.

Ein lykillausn

Aðgangsréttindi eru forrituð, uppfærð og afturkölluð í rauntíma. Þú hefur fulla stjórn án flækju hefðbundinna lykla.

Stafræn lyklalausn framtíðarinnar

Enginn sími?

Engar áhyggjur! iLOQ lykilfestar geyma öll nauðsynleg aðgangsréttindi og eru fullkomin lausn fyrir þá sem ekki nota NFC-snjallsíma.

iloq-k55-key-fob
Örugg, sveigjanleg og lyklalaus stjórnun aðgangs fyrir allar tegundir bygginga:
  • Fjölbýlishús & hótel – Sjálfvirk aðgangsstýring án hefðbundinna lykla
  • Skrifstofur & iðnaðarhúsnæði – Öryggislausnir sem mæta þörfum fyrirtækja
  • Sjúkrahús & menntastofnanir – Aðgangsstýring fyrir örugga starfsemi
  • Opinberar byggingar – Hámarksöryggi fyrir viðkvæm svæði
  • Mikilvægir innviðir – Traust lausn fyrir orku-, fjarskipta- og samgöngumannvirki
Hafðu samband

Rafræn lyklaumsjón í þínum höndum

Rafhlöðulaus lausn

Snjallsíminn virkar bæði sem lykill og orkugjafi, sem útrýmir þörfinni fyrir rafhlöður eða snúrur. Með NFC tækni, tengist síminn lásnum örugglega og veitir greiðan aðgang.

Lægri rekstrarkostnaður

iLOQ lausnin útrýmir þörfinni fyrir lyklaskipti og nýjar læsingar, sem lækkar kostnað, lágmarkar viðhaldsverk og dregur úr umhverfisáhrifum með því að fækka óþarfa ferðum þjónustuaðila.

Öryggistækni í fremstu röð

iLOQ skýjatengda kerfið gerir miðstýrða aðgangsstjórnun mögulega þar sem stjórnendur geta veitt, uppfært eða afturkallað aðgangsheimildir úr fjarlægð og í rauntíma. Þetta tryggir heildaryfirsýn yfir fasteignir, innganga og notendur.

Snjallara umhverfi

iLOQ er meira en bara lykill og orkugjafi. Kerfið bætir lífsgæði notenda með því að veita aðgang að sameiginlegum rýmum og auðvelda bókun á þjónustu.

Einföld umsýsla

Sending, uppfærsla og afturköllun aðgangsheimilda er fljótleg, einföld og hagkvæm. Notendur geta sjálfir framkvæmt fleiri daglegar aðgerðir í gegnum appið, opnað hurðir úr fjarlægð og bókað sameiginleg rými.

Fáðu ráðgjöf Panta þjónustu

Hafðu samband við okkur

Panta þjónustu