Öryggi fyrir fyrirtæki, stofnanir og iðnað
Öryggislausnir fyrir heimili, geymslur og sumarbústaði
Reolink P840 er ætluð þar sem ein föst myndavél nær ekki yfir svæðið: bílaplön, athafnasvæði, port, lóðir og framhliðar þar sem hreyfing getur komið úr hvaða átt sem er. Hún snýst 360° í hring og hallar um 90°, með mótorstýrðri aðdráttarlinsu og sjálfvirkri eftirfylgni.
Snúningshraðann má stilla frá 1,4° upp í 90° á sekúndu og hallann frá 1,4° upp í 56° á sekúndu, svo hægt er að velja á milli mjúkrar handstýringar og snöggrar viðbragðshreyfingar. Myndavélin styður allt að 64 forstilltar stöður og einn eftirlitshring með allt að 16 stöðum. Að auki má skilgreina eina varðstöðu sem myndavélin snýr sér sjálfkrafa aftur að þegar hún hefur staðið óhreyfð um tíma — svo hún endar aldrei á að horfa í ranga átt eftir að hafa verið stýrt handvirkt.
Þegar hreyfing greinist getur myndavélin fylgt viðfangsefninu eftir sjálfkrafa í stað þess að missa það út úr myndinni. Linsan er mótorstýrð frá 2,7 mm upp í 13,5 mm með hámarksljósopi F1.6, sem gefur 5x optískan aðdrátt og sjónsvið frá 100° niður í 31° á breiddina. Aðdrátturinn er optískur, svo upplausnin helst — ólíkt stafrænum aðdrætti sem einfaldlega stækkar pixla.
Sjö innrauðar perur (allt að 5,5 W, 850 nm) gefa svarthvíta nætursjón í allt að 60 m, sem er umtalsvert lengra en á venjulegum útimyndavélum og skiptir máli á opnum svæðum. Til viðbótar eru tvö stillanleg kastljós (2 × 4 W, 4000 K) sem gefa upptöku í fullum lit þegar greina þarf fatnað, lit á bíl eða önnur einkenni sem hverfa í svarthvítri mynd.
Þegar myndavélin greinir fólk, ökutæki eða dýr getur hún kveikt kastljós og sírenu samtímis til að fæla frá. Innbyggður hljóðnemi og hátalari gera tvíátta tal mögulegt. Upptökur má vista á microSD-kort í myndavélinni (allt að 256 GB), á Reolink NVR eða á FTP-þjón, og hún styður ONVIF og RTSP fyrir samþættingu við önnur kerfi.
P840 krefst PoE samkvæmt IEEE 802.3at, ekki 802.3af, og notar allt að 24 W. Venjulegur PoE-svissi sem aðeins styður 802.3af dugar ekki, og sé kerfið byggt upp með mörgum myndavélum þarf að athuga samanlagt PoE-afl svissans en ekki aðeins hámark á einu tengi. Þetta er algeng ástæða fyrir að PTZ-myndavélar endurræsi sig eða neita að fara í gang. Bakvakt aðstoðar við að reikna aflþörfina rétt.
Myndavélin er IP66-flokkuð og með festingu sem hentar bæði á vegg og í loft. Uppgefið vinnsluhitasvið er −10 °C til +50 °C. IP-flokkun segir ekkert um tæringarþol; nærri sjó þarf vandaðan frágang og reglulega skoðun.
2 á lager
Við bjóðum upp á heimsendingu innanlands með Dropp.is. Einnig er hægt að sækja vöruna til okkar. Dropp.is er þægileg þjónusta með afhendingarstaði og pakkaskápa víðsvegar um landið, sem gerir þér kleift að sækja pöntunina þegar þér hentar. Afhendingartími er yfirleitt 2-3 virkir dagar.
Þú hefur 30 daga frá afhendingardegi til að skila vöru. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og óskemmd. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar um skil.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, þarft aðstoð eða vilt fá sérsniðið tilboð, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Áreiðanleg og nett turret öryggismyndavél með 5MP upplausn, snjallri greiningu og hljóðupptöku – fullkomi...
Endingargott og veðurhelt tengibox sem ver kapla og tengi, tryggir snyrtilega uppsetningu og lengir líftíma öry...
Tilbúið PoE-öryggiskerfi fyrir heimili og minni fyrirtæki Reolink NVS8-5MD4 er heildarpakki fyrir þá sem vil...
Öflug 4K veiðimyndavél með 360° yfirsýn, 4G tengingu og snjallri dýragreiningu – fullkomin fyrir afskekkt ...
Öflug 4K 4G LTE myndavél með live view, snjallri greiningu og Starlight nætursýn – fullkomin fyrir veiði, s...
Reolink snjallvöktun fyrir heimili og fyrirtæki – háþróað öryggiskerfi Reolink býður upp á fjölbreytt...
Reolink RP-PCB12M – 12MP PoE Bullet Myndavél með Litnætursýn Reolink RP-PCB12M er öflug 12 megapixla PoE bu...
Reolink P430 – 4K 5X Zoom PoE öryggismyndavél fyrir heimili og fyrirtæki Reolink P430 er öflug PoE öryggism...
Premium snjalllás með innbyggðu WiFi, Thread og endurhlaðanlegri rafhlöðu – örugg og einföld aðgangsstý...
Nuki Smart Lock Ultra Nordics – Premium snjalllás með WiFi Nuki Smart Lock Ultra Nordics er nýjasta kynslóð...
Snjallt lyklaborð með fingrafaralesara, PIN kóða og NFC aðgangi fyrir Nuki snjalllása – einföld og örugg ...
Reolink Go PT Plus – 5MP 4G snjallmyndavél Reolink Go PT Plus er háþróuð 4G 5MP öryggismyndavél sem samei...
Háhraða microSD kort fyrir 4K upptöku, snjallsíma og dróna – allt að 200MB/s leshraði og framúrskarandi a...
BE WAVE – Snjallöryggiskerfi og heimilisstýring í einu BE WAVE er nýstárlegt, þráðlaust snjallöryggiske...
Vantar þig heildarlausn sem hentar þínu fyrirtæki eða heimili? Við ráðleggjum og finnum lausn sem uppfyllir þínar þarfir.